40 ára afmæli VSF

19. maí 2024

Opinber stofndagur félagsins er 23.5.1984, en ástæðan fyrir því að viðburðarins var minnst þann 16. er sú að Reinhard Wagner fyrrum forseti IPMA og GPM (þýska verkefnastjórnunarfélagsins) var staddur á landinu til að taka þátt í Degi verkefnastjórnunar sem haldinn var í samvinnu Háskóla Íslands og VSF.


Dagskrá með fjölda fyrirlesara var fyrripart dags í HÍ og móttaka hjá VSF kl. 17-19.


Í hófinu hjá VSF ávarpaði formaður, Aðalbjörn Þórólfsson, gesti og Reinhard Wagner flutti stutt erindi. Gestir þáðu ljúfar veitingar og styrktu tengslanet sitt með góðu spjalli.



Kærar þakkir til gesta sem sýndu félaginu áhuga með þáttöku sinni.


Eftir Stefna Hugbúnaðarhús 21. ágúst 2024
Haustráðstefna VSF er óðum að taka á sig mynd.
Eftir Stefna Hugbúnaðarhús 26. júlí 2024
Stjórn VSF hefur gengið frá ráðningu Agnesar Hólm Gunnarsdóttur sem nýrrar framkvæmdastýru félagsins. Agnes hefur töluverða reynslu af verkefnastjórnum, en hún hefur m.a. verið deildarstjóri
Eftir Stefna Hugbúnaðarhús 4. júlí 2024
Próf f. IPMA D-vottun mán 9.sept kl. 14:00 - Próf f.IPMA C-vottun þri 10.sept kl. 14:00
Share by: