IPMA Vottun

VSF hefur ásamt öðrum þjóðum unnið ötullega að því að efla verkefnastjórnun á sem flestum sviðum þjóðlífsins. Innan vébanda IPMA® hefur verið unnið að því að móta og þróa skilgreiningar fyrir vottun verkefnastjóra á alþjóðlega vísu og hefur VSF frá upphafi tekið virkan þátt í því starfi.

VSF hefur vottað íslenska verkefnastjóra samkvæmt alþjóðlegum kröfum allt frá 1997. Fyrstu vottunarferlin voru með aðstoð erlendra matsmanna sem komu meðal annars frá Þýskalandi, Englandi og Danmörku. Nú er svo komið að reynsla íslenskra matsmanna er orðin mjög góð þannig að ekki er nauðsynlegt að notast við erlenda matsmenn nema einstaka sinnum, þá til að tryggja samræmingu við önnur vottunarferli IPMA®

Vottun verkefnastjóra

Vottun verkefnastjóra hefur vaxið fiskur um hrygg í áranna rás eins og sjá má í þeim fjölda aðildarfélaga IPMA um allan heim, sem votta verkefnisstjóra samkvæmt þessum skilgreiningum.

Nú er vottað samkvæmt IPMA staðlinum í 52 aðildarlöndum IPMA®, af þeim 71 sem sæti eiga í sambandinu í dag.


Vottun er staðfesting á færni og reynslu verkefnastjórans og hefur alþjóðlega viðurkenningu sem slík. Við alþjóðleg útboð og samstarfsverkefni er lögð aukin áhersla á að gera sérstakar hæfniskröfur til fyrirtækja.

Vottun verkefnastjóra er staðfesting á að viðkomandi fyrirtæki notar starfsmenn til verkefnastjórnunar sem uppfylla slíkar hæfniskröfur. VSF býður upp á 3 af 4 stigum sem vottunarferli IPMA® skiptist í, það eru stig B, C og D.

Gildistími vottunar er 5 ár.

Staðfesting á færni og reynslu

Megin reglur IPMA vottunar

Reglur IPMA geta ekki tekið á öllum tilvikum sem upp kunna að koma. Megin reglur sem fylgt er í vottunarferlinu eru að vottun skal vera:


  • sanngjarnt og staðlað ferli þar sem allir umsækjendur fá jafna meðhöndlun;
  • sanngjörn, aðeins er beðið um sannanir fyrir hæfni sem á að meta;
  • áreiðanleg og samræmd, þannig að hver umsækjandi fái sömu matsniðurstöðu óháð matsmanni og allir matsmenn beiti sömu reglum við mat á umsækjendum;
  • byggð á fyrirliggjandi nýjum gögnum um það vottunarstig sem sótt er;
  • byggð á nægilegum sönnunar gögnum þannig að dómur matsmanns séu byggður á traustum grunni;
  • byggð á réttum gögnum sem sannreyna má að séu gögn umsækjanda;
  • nákvæm, þar sem mismunandi mats aðferðum er beitt í vottunarferlinu; og
  • gagnsæ, þannig að umsækjandi sé meðvitaður um allt matsferlið, kostnað og þeim aðferðum sem matsmenn beita við matið.

 

VSF ber að tryggja að vottunarferlið sé í samræmi við megin reglur IPMA um vottun. Í tilfellum þar ágreiningur er um megin reglur, ber VSF að jafna ágreininginn og tryggja samræmi við vottunarreglur IPMA (IPMA ICR4)


Við erum á kafi í að uppæra vottunarsíðuna okkar og einfalda umsóknarferlið. Þangað til allt er orðið klappað og klárt hér á síðunni hvetjum við þig til að hafa samband við okkur með fyrirspurnir.


Share by: